BIM - Þrívíð hönnun
Byggingar- og iðnaðarsvið hefur markvisst verið að innleiða nýlega tækni við hönnun mannvirkja. Um er að ræða þrívíða hönnun, BIM.
BIM (Building Information Modeling) er heildræn nálgun í byggingariðnaði. Aðferð sem er að ryðja sér til rúms við hönnun, framkvæmd og rekstur byggingarinnar.
Upplýsingar eru samhæfðar og vistaðar þannig að þær séu öllum aðgengilegar í rauntíma. Leið til að bæta samskipti þeirra sem koma að verkefninu. BIM stýrir ennfremur byggingariðnaði í átt að meiri sjálfbærni enda bætir það m.a aðgengi að sjálfbærum lausnum og gerir orkugreiningu fasteigna auðveldari.
Hús Náttúrufræðistofnunar Íslands og Hús íslenskra fræða (Árnastonfun), eru meðal verkefna sem teiknuð hafa verið með BIM aðferðinni.
almenna.is