Bruna- og hljóðtæknileg hönnun

Almenna verkfræðistofan býður upp á þjónustu við brunahönnun nýbygginga, brunatæknilegar úttektir á eldri byggingum og hönnun sérhæfðra vatnsúðakerfa svo eitthvað sé nefnt.

Í samvinnu við Brunamálastofnun hefur stofan gert leiðbeiningar um hönnun, uppsetningu og viðhald á dælum og dælukerfum fyrir vatnsúðakerfi.  Áralöng reynsla í brunatæknilegri hönnun er til staðar og sækja starfsmenn reglulega sérhæfð námskeið til að viðhalda og bæta við þekkingu sína.

Hljóðtæknileg hönnun
Almenna verkfræðistofan býður jafnframt uppá ráðgjöf við hljóðtæknilega hönnun í samvinnu við aðrar ráðgjafastofur.