Framkvæmdaeftirlit með mannvirkjum
Framkvæmdaeftirlit og umsjón framkvæmda er grein innan verkfræðinnar sem hefur sannað mikilvægi sitt á síðustu áratugum.
Eftirlit felst í því að fylgja eftir ákvæðum verksamnings og öllum þeim gögnum sem honum fylgja. Umsjónarmaður verkkaupa er tengiliður milli verktaka og verkkaupa og á í samræmi við staðla að stuðla að farsælli úrlausn verksins. Eitt af hlutverkum eftirlitsmanns er að vera milligöngumaður verktaka og verkkaupa auk þess að vera ráðgjafi og sá aðili sem sker úr um ágreiningsatriði. Því er nauðsynlegt að eftirlitsaðili sé vel að sér á sviði þeirra framkvæmda sem um er að ræða. Það er hlutverk umsjónar og eftirlits aðila að fylgjast með framvindu verksins og gæta hagsmuna verkkaupa.
Það er reynsla AV ( verkfræðistofa ) að virkt innra eftirlit verktaka gerir allt eftirlit og utanumhald skilvirkara og öruggara. Það er einnig hlutverk framkvæmdaeftirlits að tryggja virkt og ábyrgt kostnaðareftirlit.
almenna.is