Lagna- og loftræsihönnun
Áratuga reynsla er innan stofunnar í lagna- og loftræsihönnun fyrir ýmis konar starfssemi, svo sem opinberar byggingar, verksmiðjur, skóla, skrifstofuhúsnæði, virkjanir, o.fl.
Boðið er upp á heilstæða þjónustu á þessu sviði, má þar nefna vatnslagnir, loftræsikerfi, frárennsli, hitakerfi, snjóbræðslukerfi og þrýstiloftskerfi, jafnframt er boðið uppá þjónustu á sviði orkunotkunar bygginga.
Byggingar- og iðnaðarsvið hefur þrisvar sinnum hlotið útnefningu Lagnafélags Íslands fyrir lofsvert lagnaverk. Ráðhús Reykjavíkur, Dómshús Hæstaréttar og Flugstjórnunarmiðstöðina á Reykjavíkurflugvelli.
almenna.is