Gler í byggingum
Notkun glers í byggingum hefur færst í aukana undanfarin ár. Gler er m.a. notað sem veðurkápa á hús, fallvörn í handrið og veggi, í skyggni og á þök og gólf. Þrátt fyrir hina auknu notkun glers og hinar mörgu mismunandi tegundir og notkunarmyndir þess hefur burðarþolshönnun, orkubúskapur og öryggismál glers ekki þróast að sama skapi.
Almenna verkfræðistofan hefur sl. 4 ár markvisst byggt upp fagþekkingu á þessu sviði og verið í farabroddi varðandi þróun lausna sem gera kleyft að nota gler á hagkvæman og öruggan hátt – líkt og önnur byggingarefni.
Í nánu samráði við embætti Byggingafulltrúa, Umhverfisráðuneytið og Nýsköpunarmiðstöðina, hafa verið haldnir fagfyrirlestrar, vinnulag þróað og tilraunabúnaður þróaður. Má þar nefna tilraunabúnað tengdan öryggismálum eins og útfærslu fallvarna – sérstaklega í opinberum byggingum þar sem ábyrgðarhlutverk og árekstrarálag á glerveggi er metið.
Almenna verkfræðistofan hefur komið sér upp hugbúnaði og vinnulagi til þess að meta orkubúskap glerveggja og bygginga í heild. Á þennan hátt sparast rekstrarorka og hægt er að minnka stærð og viðhaldskostnað hitunarkerfa. Með þessu móti má einnig auka gæði innivistar til muna og auka þannig ánægju notenda og fækka veikindadögum.
Prófanir á gleri í Tónlistarhúsinu
Skoða video (video.mov)
Skoða video (video.flv)
almenna.is