Skipulagsáætlanir og umhverfismat
Almenna verkfræðistofan veitir ráðgjöf við gerð skipulagsáætlana á borð við svæðis-, aðal- og deiliskipulag sveitarfélaga, samgönguáætlun, vegaáætlun og skipulagsáætlanir þjóðgarða.
Í þjónustu við skipulagsmál er þróun í átt að sjálfbæru samfélagi alltaf höfð í forgrunni.
Sérfræðingar stofunnar vinna við að greina mögulega þróun ýmissa þátta í framtíðinni, meðal annars þátta er varða samsetningu byggðar og byggðamynstur, samgöngur, íbúaþróun, atvinnulíf og náttúrufar. Með slíkum greiningum er hægt að skoða mismunandi valkosti og leggja grunn að skipulagsáætlunum.
Almenna verkfræðistofan býður upp á þjónustu við gerð umhverfismats áætlana. Verkefni sem þessi krefjast þverfaglegrar þekkingar, meðal annars á sviði líffræði, jarðfræði, vatnafræði, landfræði og skipulags- og umferðarmála.
almenna.is