Verkefnastjórnun

Sviðsstjóri
Bjarni Jónsson
bjarnialmenna.is

Góð verkefnastjórn er forsenda góðrar útkomu, hvort heldur um er að ræða mannvirkjagerð eða önnur verkefni sem krefjast tryggrar stjórnunar. Verkefnastjórn er víðtækt hugtak og nær til flestra þeirra þátta er koma að verkefnum frá vöggu til grafar.

Almenna (verkfræðistofa) hefur í áratugi rekið Verkefna- stjórnunarsvið sem sinnir og heldur utanum öll þau verkefni sem falla undir verkefnastjórn, framkvæmdaeftirlit, kostnaðaráætlanir, áætlanagerð, viðhald fasteigna, fasteignastjórnun og matsstörf hverskonar.

Almennu verkfræðistofunni hefur verið falin stjórnun og umsjón fjölda verka, oftast í nánu samráði við verkkaupa eða bygginganefndir þeirra. AV hefur áratuga reynslu á þessum sviðum og hefur marga sérfræðinga á sínum snærum er sinna verkefnastjórnun, umsjón og eftirliti með framkvæmdum eða öðrum skilgreindum verkum.