Verkefnastjórnun
Verkefnastjórnun sem fræðasvið hefur þróast sem sérgrein á mótum verkfræði og stjórnunarfræða. Verkefnastjórnun í þeim skilningi er einkum skilgreining á markmiðum, skipulagning verka, kostnaðar- og framkvæmdaáætlanir, eftirlit með framvindu, gæðum og kostnaði og skýrslugerð um hvernig til tókst með verkefnið.
Öll verkefnastjórnun miðar að því að leysa skilgreind verkefni á sem hagkvæmastan hátt fyrir eiganda verkefnis. Verkefnastjórnun er unnin í samræmi við vottaða verkferla sem tryggja rekjanleika samskipta og ákvarðanna. Mat á árangri byggist á samanburði niðurstöðu verkefnis við fyrirfram skilgreind viðmið sem taka mið af hagsmunum verkefnis eiganda, hefðbundnum þáttum (á réttum tíma á réttu verði) og hagnaðarvon þátttakenda.
almenna.is